Ljónið í dag...
Sumarfrí
Talandi um náttúru. Ég fór á Náttúrutónleikana síðasta laugardag.. skemmti mér þrælvel þrátt fyrir kuldann og rokið.. góður félagsskapur kemur í staðinn fyrir ýmislegt. Ég varð ekki heldur veik eftir kvöldið eins og svo margir.. það var kósý að sitja þarna á kaldri jörðinni og dilla sér í takt við tónlistina.. næst tek ég með heitt súkkulaði og teppi..
....
7 dagar liðnir af sumarfríinu, fleiri en einn sólardagur.. en ég hef eytt fríinu að miklu leyti í bíósölum borgarinnar... svo ég hef enn ekki séð til sólar..
Fór á mánudag á eina verstu mynd allra tíma.. Zohan... sem ég þurfti sem betur fer ekki að borga mig inn á.. það hefði verið peningur sem ég hefði grátið...
Á fimmtudag fór ég á Mamma Mía í boði Landsbankans.. hún var þrusugóð.. fékk tösku.. það var gott
Á föstudag fór ég á Wanted með Angelinu Jolie.. þurfti að borga sjálf en hún var þess virði.. flott Matrix áhrif í tækninni... Angelina Jolie.. thin as ever.. James McAvoy er nýr hjartaknúsari sem vert er að taka eftir..
Myndirnar áttu eitt sameiginlegt.. félagsskapurinn sem ég naut meðan á þeim stóð var frábær :)
Eins og þið sjáið.. þá hef ég verið mjög upptekin í fríinu.. og bloggáhuginn er greinilega til staðar...
Tala við ykkur seinna.. Heiðmörk og Krokket í dag.. svo sukk og svínarí í Mosfellsbænum..
Að minnsta kosti 170 km, 2 flugum, einu partýi og heilum háralit seinna...
Ég svaf í heila tvo tíma áður en ég hélt af stað upp í Borgarnes, við Anna fórum í smá túr um bæinn, þar á meðal kíktum við inn í verslunina Kristý sem er eina verslunin á landinu sem selur vörur frá Victoria's Secret og Bath and Body Works. Sem eina verslunin með þessar vörur þá hefur hún leyft sér að leggja 2160kr á eina sjampó flösku sem kostar úti litlar 720 kr, reyndar leggja þær 2320kr á ef maður tekur til greina tilboðið sem þeir bjóða upp á úti á þessu tiltekna sjampói. Bara bilun! Frekar bíð ég eftir því að Flugmaðurinn fari aftur út til USA og kaupi fleiri handa mér.. ég fæ þá vöruna líka í flottum bleikum pokum ;)
Eftir flottar veitingar, háralitun, uppvakningamynd (Dawn of the dead í hvað, fjórða-fimmta skiptið?? Anna, það er hægt að velja milli fleiri mynda en hennar og Titanic, í alvörunni!!) þá hélt ég heim á leið, kíkti við hjá þeim gömlu sem voru nýkomin frá Kanada, fyrsta utanlandsferðin þeirra í nærri tvo áratugi.. ég býst við að þau haldi til Kúbu seinna á árinu fyrst þau eru komin á bragðið. Fékk þrælfínar náttbuxur út úr þessu, ég kvarta ekki.
Herfurnar hittust svo á laugardagskvöldið í nýja slotinu hennar Örnu, alltaf gaman að sjá þær.. nú eru tvær þeirra með barni, við bíðum eftir þriðju tilkynningunni... þær fara varla að breyta hefðinni núna ;) er það?
Eníveis, ég syrgi flugurnar tvær sem létu lífið á bílrúðunni hjá mér... og ég vona að fuglaskíturinn sem var skotið hér á gluggann hjá mér rétt í þessu hafi verið óhapp en ekki beint að mér persónulega. Að geta skitið "sideways" er hæfileiki, það verður erfitt að þrífa þetta... þriðja hæð, ekki svalir...
Tuði tuð
Mér þykir bara verst að vita að þessi verð eru ekkert á leiðinni niður aftur. Einstaka fyrirtæki eiga hrós skilið, eins og Aktu Taktu sem hafa barnaísinn á 100kr í allt sumar, einhversstaðar heyrði ég að Regnboginn ætlaði að hafa miðaverð á 650kr í sumar. Um að gera að versla við þær búðir sem hækka minnst sín vöruverð....
Það er of dýrt að vera Íslendingur í dag!
Ekkert sérstakt
Ég er svolítið spennt og jafnt kvíðin fyrir deginum í dag, ég vona að hann marki lok á leiðinlegum biðtíma sem hefur staðið yfir of lengi. Ef ekki, þá veit ég samt hvað ég þarf að gera... málið er að finna réttan tíma til að framkvæma það.
Vikan framundan verður erfið ef þessi hósti og bakið ætla að halda áfram að angra mig svona. Ég sé samt helgina í hillingum með stuttri sveitaferð og svo samkomu með Herfunum..
Eníhús... ég kveð ykkur í bili þar til ég hef eitthvað að segja... :)
Polar Dust og jarðhræringar..
En að öðrum hræringum. Polar Dust héldu sína fyrstu tónleika í gærkvöldi! Stelpurnar ákváðu að hafa þetta bara fyrir vini og vandamenn, og var þetta nokkurs konar upphitun fyrir Mini Ciné seinna í sumar.
Milli 20 og 30 manns mættu á kaffihúsið sem var lokað fyrir almenning (reyndar alltaf lokað á þessum tíma en flott að segja hitt ;) ), þær fengu einnig bánser í sjálfboðaliðastarf, þó aðallega í djóki en svo kom í ljós að þær þurftu á honum að halda því við fengum boðflennu sem þurfti að reka út með hörðu! Tónleikarnir voru virkilega vel heppnaðir miðað við að þetta var í fyrsta skipti sem þær voru að spila fyrir framan aðra. Auðvitað var svo eftirpartý, einnig haldið á sama stað.. svo mikið fjör var að fólk fór ekki í bæinn fyrr en um 4 leytið. Ég kynntist þarna ágætis fólki, þó minnistæðast hafi verið Lettneska stelpan sem var yfir sig ástfangin af mér og Karl og reyndi við okkur bæði sitt á hvað! Það tók Karl lengri tíma að reyna að sannfæra hana að hann vildi engan veginn taka hana í burtu frá manni og barni (WHAT?) en hún vildi ekki segjast.. seinna rauk hún á mig og skellti á mig blautum rembingskoss (einungis blautur af hennar hálfu:S). Ég flúði af vettvangi og hélt mig hjá Guido og Karl það sem eftir lifði kvöldsins í von um að sleppa við fleiri slíka...
Mannfjöldinn niðrí bæ er alltaf álíka heillandi, eftir stutt stopp á Ellefunni ákvað ég að laumast heim. Lettinn hringdi í mig þegar ég var komin hálfa leið heim og spurði hvar í fjandanum ég væri.. með því að nota "tungumálaörðugleika" sem afsökun þá kom ég mér út úr því að gefa það upp hvar "heima" væri og var nokkuð örugg um að ég væri sloppin í bili. En nei.. það beið mín Letti í andyrinu, en í þetta skipti hávaxinn dökkhærður og mjög myndarlegur "karlmaður" og vildi ólmur fylgja mér í lyftuna.. ég sagði ekki nei enda þessi kostur miklu ákjósanlegri fyrir stelpu eins og mig :P hann fór út á hæðinni minni... og svo segjum við ekki meir... ;)
Þá er þessu lokið
Því miður, ekki tókst okkur að komast í topp tíu þrátt fyrir bjartsýni margra. Ég er þó ánægð með okkar fólk, við stóðum okkur vel :)
Það er búið að vera að tala um muninn milli viðbragða okkar Íslendinga og frændur okkar Dana. Við Íslendingarnir erum í skýjunum að hafa náð upp úr undankeppninni og í raun hefðu engu skipt í hvaða sæti í undanúrslitunum við hefðum lent því okkur líður samt eins og sigurvegurum. Danir, hins vegar, hafa sett upp fýlusvipinn og eru ósáttir við að greyið Simon hafi ekki gert betur en 15. sæti,. Þeir hafa snúist gegn honum og einhver gekk svo langt að segja að hann væri líka bara lélegur söngvari og lagahöfundur og síðasta plata hans hafi verið drasl...
Jákvæðni, er það ekki málið?
Allavega skemmti fólk sér fjandi vel á Euroballinu á Nasa, hópurinn (Menngó plús maki og vinir) hafði planað að fara á Nasa en því miður hafði verið uppselt í forsölu. Við ákváðum þó að taka sénsinn og héldum niður á Austurvöll eftir vel heppnað og alvöru Júróvisjónpartý hjá Netverjanum uppi í Mosó (hver fer í partý upp í Mosó anyways??). Viti menn, það voru til miðar og við komust öll inn. Það var fínt inni fyrrihluta kvölds, reyndar strax orðið svoldið sveitt þarna um miðnætti en svo fór fólk að týnast inn og um 2 leytið var orðið svo troðið að ekki var hægt að dansa né hreyfa sig nema ef fjöldanum þóknaðist og þá var bara að um að gera og hreyfa sig með honum. Ég hef sjaldan verið handfjötluð jafn ákaflega né fæturnir orðið fyrir jafn miklu áreiti vegna tramps. En þetta var gaman.. fullt af skemmtikröftum sem við náðum að sjá þó við hefðum horfið á braut áður en sjóvið var búið.
En þessu er lokið, vikan er búin að vera strembin, samt dvaldi ég 3 nætur í sumarbústað í Ölfusborgum. Karl og Brunó komu í heimsókn á mánudeginum, Ellen á þriðjudeginum og svo familían á miðvikudeginum. Yndislegt að fá þetta fólk í heimsókn þó að ég muni ekki grilla í bráðina aftur :oS Á föstudeginum fór ég ekki einu sinni heldur tvisvar til Keflavíkur, í fyrra skiptið til að skutla Michael í flug og svo var spilakvöld hjá Snúrunum. Við Snúrurnar höfðum ekki hist lengi og það var virkilega gaman að sjá stelpurnar eftir langan aðskilnað og frá fréttir af nýju Snúrubarni sem er væntanlegt í haust....
Það liggur við að það sé afslöppun, eftir þetta allt saman, að mæta hér í vinnu og ná aðeins að slaka á með Fröken Jane Austen og pistasíurnar mínar...
Best að halda áfram...
Tilviljun?
Frænka mín gaf mér bók um daginn, bókin var enn í plasti og hún hélt ég hefði örugglega áhuga á því að eiga hana, og jújú hún hafði rétt fyrir sér. Í dag þurfti ég að fara á bókasafnið til að redda mér heimildum fyrir þessa blessuðu ritgerð mína svo ég geti unnið í henni í bústaðnum, ég fattaði það að kortið mitt var útrunnið áður en ég lagði af stað og ætlaði í staðinn að reyna að fá bókina annarsstaðar (vildi ekki fjárfesta í endurnýjun á kortinu fyrir aðeins eina bók, þar sem lítið verður lesið til gamans á næstu mánuðum). Ég var búin að gleyma þessari bók sem frænka mín gaf mér, rak svo af tilviljun augun í hana í hillunni minni og viti menn, þetta var akkurat bókin sem mig vantaði :)
Örlög.. hlutirnir fara alltaf eins og þeir eiga að fara :)
Af mér..
Síðasta vika var frekar brjáluð, ég var í fríi næstum alla vikuna og var búin að lofa mér á þó nokkuð marga staði en náði auðvitað ekki að hitta helminginn af því fólki sem ég sagðist ætla að kíkja á. Ég fór þó í heimsókn í nýja slotið þeirra Örnu og Ómars! :) ekki einu sinni heldur meira að segja tvisvar, ágætis árangur hjá mér sem hef lofað að kíkja í marga mánuði. Michael kom á miðvikudag og verður hjá okkur út næstu viku, og mamma átti afmæli á fimmtudag. Familían kíkti á laugardag upp á Hvanneyri til Önnu og Lalla, tóku ekkert smá vel á móti okkur og grillmaturinn var helv%& góður :) Svo brunaði ég í bæinn til að ná afmælinu hjá Díu! Eins og ég segi, klikkun enda ég að fara í 3 daga afslöppun eftir þetta allt saman, eða já afslöppun og undirbúning fyrir júróvikuna sem er að hefjast ;) þetta verður strembin vika en ég er bjartsýn... Ísland og Armenía... það held ég nú!
Sé ykkur seinna!
Lægðin
Já, og kettirnir eru komnir í megrun!